💡Ny Ordreportal - Se aktuel status >>

Þrjár smásögur

Af: Guðrún Lárusdóttir
En del af: Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur
Kategori: Lydbøger
Kategori nr.: 8770
Varenr.: 3095811
| Stregkode: 9788728569290
Direkte | Leverandør: Diverse kreditorer (bibi)

Vælg format:
Lager status
  • IR Lager
  • IR Fysisk lager
  • Næste ankomstdato til IR's lager -
  • Butik bestilling
  • Resv. antal
  • Disp. lager

Beskrivelse

Sögurnar þrjár í þessu smásagnasafni Guðrúnar Lárusdóttur (1880 - 1938) komu út á bilinu 1915-1917.

Ásta litla, fyrsta sagan, fjallar um unga stúlku sem er við að byrja aftur í skóla að hausti eftir sumarfrí. Hún er vön að ganga í skólann með fína tösku á bakinu. En vinkona hennar, Gerður, hefur nýverið fengið nýja skólatösku ásamt ýmsum öðrum gersemum sem hún geymir í töskunni. Þá verður Ásta afbrýðisöm. Hún hefur ekki fengið jafn skemmtilegt skóladót fyrir nýja árið og þarf að nota gömlu töskuna sína. En Ásta á eftir að læra hvað er nauðsynlegt og hvað er óþarfi, með hjálp kennara síns kemst hún kannski í skilning um hvað skiptir mestu máli að eiga.

Önnur sagan fjallar um Einar kaupmann, sem er alvarlegur og ómannblendinn maður. En hann mýkist allur í umgengni við Björgu dóttur sína. Hún er létt í skapi og skemmtilegt barn. Þegar hún eldist flyst hún burt og kannar heiminn upp á eigin spýtur. En sjálfstæði hennar kemur aðeins upp á milli þeirra feðgina. Þau lenda í miklum vandræðum við að greiða úr sambandi sínu og ekki er víst að þeim takist það.

Þriðja sagan, Góður vilji, fjallar um Elínu. Hún er saumakona með fötlun og leggur sig alla fram við að vinna fyrir sjálfri sér. Hún veit að sumir eiga um sárt að binda og þykir óbærilegt að hugsa til þess. Hana langar að láta gott af sér leiða og finnst ekkert betra en að gleðja aðra, einkum börn.





Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin.
Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.

Detaljer

  • EAN
    9788728569290
  • Vægt
    0 g
  • Disponent
    Direkte titel
  • Forfatter
    Guðrún Lárusdóttir
  • Serie
    Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur
  • Forlag
    SAGA Egmont
  • ISBN
    9788728569290
  • Sprog
    Islandsk
  • Originaltitel
    Þrjár smásögur
  • Udgivelsesdato
  • Format
    EBOG
  • Themakode
    FBC, FXS, FXT, FYB, 1DNC, 3MPB, 5AM
  • Kategori
    Lydbøger
  • Kategori nr
    8770
  • Lev. varenr.
    99999999

Læs uddrag

Þrjár smásögur