💡Ny Ordreportal - Se aktuel status >>

Eiginkona læknisins

Af: Daniel Hurst
En del af: Eiginkona læknisins
Kategori: Lydbøger
Kategori nr.: 8770
Varenr.: 3478161
| Stregkode: 9788742829004
Direkte | Leverandør: Diverse kreditorer (bibi)

Vælg format:
Lager status
  • IR Lager
  • IR Fysisk lager
  • Næste ankomstdato til IR's lager -
  • Butik bestilling
  • Resv. antal
  • Disp. lager

Beskrivelse

Hann heldur að enginn muni komast að leyndarmálinu – en hún veit sannleikann …

Maðurinn minn er læknir. Hann er klár og heillandi, allir treysta honum. Nema ég.

Á yfirborðinu lítur út fyrir að ég eigi allt – fullkomið hjónaband, fullkominn eiginmann, fullkomið líf.
En sannleikurinn er allt annar.

Drew Devlin læknir er ekki sá virðulegi maður sem hann gefur sig út fyrir að vera. Ástæða þess að við ákváðum að flytja í þetta gamla fallega hús með stórkostlega sjávarútsýninu var sú að við vildum gjarnan snúa baki við fortíðinni. Þetta átti að vera ný byrjun fyrir okkur.

Hins vegar hef ég komist að því að eiginmaðurinn lýgur að mér – aftur. Hann nýtir sér valdið sem starfið gefur honum til að eyðileggja líf fólks og taka nákvæmlega það sem hann langar í – sama hvaða áhrif það hefur á aðra.

En hann vanmetur mig. Ég hef nægan tíma í þessu stóra, einangraða húsi til að hugsa um öll mistökin sem hann hefur gert.

Og maðurinn minn hefur ekki hugmynd um hvað á eftir að gerast …

---

„Vá … Gat ekki lagt hana frá mér! … Óvænt flétta sem snéri mér í hringi! … Þessi á skilið fleiri en 5 stjörnur, hún er skyldulesning!“ - Bókadómur Heidi Lynn

„Vá! … Mjög spennandi, ég las hana í einum rykk … Ég sat á stólbrúninni og nagaði neglurnar á meðan hjartað hamaðist! … Taugatrekkjandi bók sem fær hjartað til að slá hraðar, blaðsíðurnar fletta sér sjálfar og þú getur ekki lagt hana frá þér … Ég ELSKAÐI hana.“ - Bookworm86

„Vá, vá, vá, vá, vá. Ég meina, vá. Þessi bók var svo góð! … Virkilega spennandi söguþráður … Ég fór fyrst í eina átt, síðan aðra.“ - @thrilleraddict1986

„Stressandi og spennandi bók … Vá … Ég gat ekki flett blaðsíðunum nógu hratt … Snúinn söguþráður sem kemur þér algjörlega á óvart. Þetta er syndsamleg bók á jákvæðan hátt, þú verður bara að lesa hana! – Umsagnir um bókina í bókagagnrýni Once Upon a Time

„Virkilega sjokkerandi og ótrúleg … Ef þér finnst gaman í rússíbana, vertu þá tilbúinn, þú situr í einum sem er fullur af kröppum beygjum og snúningum … Frábær!“ - @travel_through_books

„Þetta er önnur bókin sem ég les eftir þennan höfund og varð heillaður af stílnum og hæfileikum hans til að skrifa svona grípandi bók … Þar sem þetta er glæpasaga giskarðu mögulega á hvað eigi eftir að gerast áður en þú opnar bókina. Jæja, ég mæli eindregið með að þú opnir hana og látir draga þig inn í sögu sem er full af blekkingum og lygum … Ég vona að þú njótir hennar jafn mikið og ég gerði. 5 stjörnur“ – B fyrir Bookreview

Detaljer

  • EAN
    9788742829004
  • Vægt
    0 kg
  • Disponent
    Direkte titel
  • Forfatter
    Daniel Hurst
  • Serie
    Eiginkona læknisins
  • Forlag
    Jentas
  • ISBN
    9788742829004
  • Sprog
    Islandsk
  • Originaltitel
    Eiginkona læknisins
  • Udgivelsesdato
  • Format
    EBOG
  • Themakode
    FF, FFL, FH, FHX
  • Kategori
    Lydbøger
  • Kategori nr
    8770
  • Lev. varenr.
    99999999

Læs uddrag

Eiginkona læknisins

Prøvelyt

Eiginkona læknisins